Sagnasafn Hugleiks

Athugasemdir við færslu 11/3 2009

Lísa, 15/3 2009 kl. 11:27:

Leikstjórinn er stórhættulegur með þetta prik!

Séra Guðmundur, 15/3 2009 kl. 18:08:

Ég er víst enn þá dauður..held að það séu allir búnir að gleyma mér.

Aftur í dagbók


11/3 2009

Já? Hvað vorum við aftur að gera?
Æfa eitthvað?
Jú, einmitt. Hallfreður og Flóki riðu á vaðið og slappstikkuðu dáldið með staf og kíki.
Þá fór Hallfreður og Sigríður kom.
Hún og Flóki renndu sér á rassinum í gegnum sín atriði, fram og til baka. Helstu niðurstöður úr því er að það vantar barstóla á æfingar.
Svo fór Flóki en Indriði kom í staðinn.
Eftir það fór kvöldið í hamslausa sveitarómantík, hérlendis sem erlendis. Leikstjórinn brúkaði stafprikið óspart og miðaði því öllusaman vel áfram.

Tsjú, tsjú, trallalla...

Sigríður Lára Sigurjónsdóttir

11/3 2009