Auglýsingasöngurinn
Texti | |||
---|---|---|---|
Árni Hjartarson | |||
Lag | |||
Árni Hjartarson |
Sértu orðinn leiður á suddanum og ruddanum
sílemjandi rigningu og íslensku tuddunum,
sértu orðinn þreyttur á soranum og gorinu
sé ég aðeins eitt sem getur kippt þér upp úr slorinu.
Yndisferðir, yndisferðir, yndisferðir á gjafverði!
Sértu orðinn æstur í suðræn lönd og sólarströnd,
sumarbrúnar meyjar í strápilsum með öklabönd,
sértu orðinn æstur í svínasteik og vínin bleik,
sé ég aðeins eitt sem getur bjargað því með léttum leik.
Yndisferðir, yndisferðir, yndisferðir á gjafverði!
Yndis, yndis, yndis, yndis,
yndis, yndis, yndis, yndis,
yndisferðir, yndisferðir, yndisferðir á gjafverði!