Patataz
Um leikritið 
Höfundur:
Björn M. SigurjónssonLeikstjóri:
Bergur Þór IngólfssonSýningarstaður: Stúdíó 4
Frumsýnt: 06/03 2005
Sýnt 8 sinnum fyrir samtals 250 manns
Dagbók:
Af æfingum á Patataz (eða Aðfaranótt eins og það hét þegar æfingar hófust)Leikferð: Akureyri
Úr gagnrýni
„...Patataz er þegar á allt er litið, afar vel sviðsett leiksýning.
...ekki annað hægt en að hrósa leikurum fyrir sína frammistöðu. Allir standa sig með miklum ágætum...“ Hörður Sigurðarson, leiklist.is
„Verkið er vel skrifað og spennandi, það hefur þétta framvindu, er alverlegt og ögrandi og samtölin eru lipur og lifandi. ... Sýningin er hröð og lífleg og aldrei dauður punktur í stígandinni að uppgjörinu. ... Leikararnir léku allir alveg sérstaklega vel... [Sýningin er] vönduð, áhrifamikil og skemmtileg.“ Hrund Ólafsdóttir, Morgunblaðið
„...þarna hefur höfundinum ... tekist að skrifa ágætisleikrit. Það er mikið lagt í þessa sýningu, í orðsins fyllstu merkingu. ... Leikstjórnin er mjög vönduð og sýningin öll vel unnin ... Leikararnir ... skila öll framúrskarandi verki. Það leynir sér ekki að reynsla, þekking og smekkvísi stjórna hér ferðinni og úr verður prýðisgóð og athyglisverð leiksýning. ... Og ef maður talar um ... áhugaleiklist, þá er það ekki spurning í mínum huga að þessi sýning er í hæsta gæðaflokki.“ Þráinn Karlsson, Gagnrýnifundur á Leikum núna!
„...kom mér mjög skemmtilega á óvart ... Ég var bara mjög hrifinn. ... Björn Sigurjónsson hefur skrifað þarna bara glettilega gott verk, ... "Stundarfriður 21. aldarinnar". ... komplement til leikaranna, þið voruð öll mjög góð.“ Þorsteinn Bachmann, Gagnrýnifundur á Leikum núna!
Úr leikskrá
Ávarp:
Allt nýtt – eins og venjulega (Þorgeir Tryggvason)
Myndir