Undir hamrinum (2002)
Höfundur: Hildur ÞórðardóttirHlutverk: 8 (4/4/0)Textabrot:
Enginn veit til angurs fyrr en reynir. Auður:Heldurðu marga vinnumenn?Úlfljótur:
Fimm. Það dugar.Auður:
En vinnukonur?Úlfljótur:
Ég hef verið með eina en hún er orðin svo gömul að hún er að drepast. Því er ég að leita mér að kerlingu.Bergþóra:
Er þá engin sem eldar?Úlfljótur:
Jú, þú.Auður lítur kankvís á BergþóruÚlfljótur:
Ég ætla rétt að vona að þú kunnir að elda almennilegan mat. Uppáhaldsmaturinn minn er Eyvindur í sparifötunum en einnig finnst mér Eyvindur með hor afbragð.Bergþóra:
Já!?Úlfljótur:
Þú kannt vonandi að matreiða hann.Bergþóra:
Ja, við höfum aldrei haft slíka Eyvinda hér á prestssetrinu.Úlfljótur:
Síðasta konan mín var snillingur í eldamennsku.Auður:
Hefurðu átt margar konur?Úlfljótur:Fimm, en þær drápust allar. Þegar sú síðasta dó, ætlaði ég ekki að fá mér aðra, en það er svo mikið vesen á þessum vinnukonum, alltaf að stinga af úr vistinni eða verða óléttar. Svo heimta þær kaup ofan í allt.Bergþóra:
Úr hverju dóu konurnar þínar?Úlfljótur:
Hinu og þessu. Ein dó úr hor, önnur úr verkjum, þriðja af barnsförum, ein varð úti og sú síðasta, já úr hverju dó hún aftur, ja, hún var alltaf eitthvað slöpp. Ég held það hafi bara verið leti í henni. Það var sama hvað ég barði hana áfram hún stóð aldrei í lappirnar.Bergþóra:
Barðirðu hana, fárveika?Úlfljótur:Ég barði þær allar, eins og harðfisk. Svo hræddi ég reglulega úr þeim líftóruna. (hlær) Ég setti á mig svarta hettu og kom svo aftan að þeim úti í fjósi, þar sem þær sátu við mjaltir. "Máninn líður, dauðinn ríður, sérðu ekki hvítan blett á hnakka mínum, Garún, Garún?" Þá ærðust þær alveg og hlupu inn í bæ. (hlær) Ráðskonan mín, þessi sem er að drepast, segir að ég verði að hætta þessum ólátum. En ég stenst ekki freistinguna.Bergþóra:
En börnin þín, berðu þau líka?Úlfljótur:
Ég á engin börn.Bergþóra:
En ? ... Eignaðistu engin börn með öllum þessum konum?Úlfljótur:
Einhverja hvolpa eignuðust þær, en þetta voru allt svoddans aumingjar og þær í engan stakk búnar til að sjá um þessi kvikindi svo ég seldi þau bara í skítverk. Nema þann rauðhærða, hann fór í beitu til franskra sjómanna.Bergþóra:
SELDIRÐU ÞAU Í BEITU?Úlfljótur:
Þeir vildu bara þann rauðhærða. Hitt var handónýtt hvort eð var. Varla kjöttægja utan á þeim. (Allir horfa á hann í forundran) Það var ekkert annað hægt að gera við þetta, sísvangt og grenjandi. Ég þoli ekki hávaða.
Söngtextar:
SætröllskvæðiAð lokum
Elskulega dóttir
Dauðaplott
Vinnukeðja
Ættstórar stúlkur
Sett upp af Hugleik:
Tjarnarbíó (2003) |
Viljandi Kultuurikolledzh, Viljandi, Eistlandi (2004) |
Theatre Princess Grace, Mónakó og Möguleikhúsið (2005) |
Sett upp utan Hugleiks:
Leikdeild ungmennafélags Biskupstungna (2010) |